Ronaldo ekki með á morgun

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. AFP

Cristiano Ronaldo verður fjarri góðu gamni með Real Madrid á morgun þegar liðið sækir Real Sociedad heim í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.

Portúgalinn frábæri gengur ekki heill til skógar en meiðsli í hné hafa verið að angra Ronaldo um nokkurt skeið. Hann verður ekki í leikmannahópi Real Madrid og spilar ekki með Portúgölum á föstudaginn þegar þeir mæta Albönum í undankeppni EM.

Alfreð Finnbogason verður sömuleiðis fjarri góðu gamni í liði Real Sociedad en hann er að jafna sig eftir að hafa farið úr axlarlið í leik með liðinu fyrir þremur vikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert