Rúnar Már Sigurjónsson var á skotskónum í kvöld þegar Sundsvall vann Assyriska, 2:1, í sænsku B-deildinni í knattspyrnu. Með sigrinum komst Sundsvall upp í efsta sæti deildarinnar.
Rúnar skoraði fyrra mark liðsins á 35. mínútu. Hann tók þátt í leiknum frá upphafi til enda eins og liðsfélagi hans og samlandi, Jón Guðni Fjóluson. Rúnar krækti í gult spjald á 75. mínútu.
Sundsvall hefur nú 44 stig eftir 22 leiki í efsta sæti B-deildarinnar. Ljungskile er tveimur stigum á eftir og Hammarby er í þriðja sæti með 41 stig. Þessi þrjú lið skera sig nokkuð úr í toppbaráttunni.