Mörkin 24 hjá Viðari Erni (myndskeið)

Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson. Ljósmynd/dagbladet.no

Viðar Örn Kjartansson, rakarasonurinn frá Selfossi, er mikið í sviðsljósinu í Noregi en frammistaða hans með Vålerenga á tímabilinu hefur verið mögnuð.

Viðar Örn skoraði sína aðra þrennu fyrir liðið í gær og hefur þar með skorað 24 mörk í þeim 22 leikjum sem hann hefur spilað með liðinu í deildinni. Markametið sem er 48 ára gamalt er í hættu en það er í eigu Odd Iversen sem skoraði 30 mörk.

Í myndbandinu hér að neðan má sjá öll 24 mörk Viðars á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert