Ribery ekki með gegn Man. City

Franck Ribery missir af leik Bayern München og Manchester City …
Franck Ribery missir af leik Bayern München og Manchester City í Meistaradeild Evrópu annað kvöld vegna meiðsla. AFP

Frakkinn Franck Ribery verður ekki með Bayern München gegn Manchester City í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu annað kvöld vegna meiðsla. Þá er Hollendingurinn Arjen Robben einnig tæpur vegna meiðsla.

„Franck er ekki hér í München. Hann fór heim til sín, til Frakklands í gær til að hitta lækni og í dag tjáði hann mér að hann gæti ekki spilað með okkur í Meistaradeildinni annað kvöld,“ sagði Spánverjinn Pep Guardiola knattspyrnustjóri Bayern á blaðamannafundi í München í dag.

Bayern München og Manchester City leika í E-riðli, riðlakeppni Meistaradeildarinnar ásamt CSKA Moskvu frá Rússlandi og Roma frá Ítalíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert