Rodgers: Magnað að vinna leikinn

Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool glaður í bragði.
Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool glaður í bragði. AFP

„Um einstakt kvöld var að ræða fyrir alla hjá félaginu," sagði Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, glaður í bragði þegar hann gekk af leikvelli á Anfield í kvöld eftir að Liverpool vann búlgarska lið Ludogorets, 2:1, í fyrsta leik liðsins í Meistaradeild Evrópu í fimm ár.

Steven Gerrard tryggði Liverpool sigurinn á þriðju mínútu í uppbótartíma með marki úr vítaspyrnu þegar allt stefndi í jafntefli. 

„Það var magnað að vinna leikinn. Strákarnir sýndu frábæran karakter allt til enda og uppskáru samkvæmt því," sagði Rodgers ennfremur en hann stýrði liði í fyrsta sinn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert