Varane með nýjan sex ára samning

Raphaël Varane hefur gert nýjan sex ára samning við Real …
Raphaël Varane hefur gert nýjan sex ára samning við Real Madríd. Ljósmynd/Real Madríd

Spænska knattspyrnuliðið Real Madríd hefur tryggt sér þjónustu franska miðvarðarins Raphaël Varane næstu sex árin í viðbót, því kappinn skrifaði í dag undir samning til ársins 2020 við Madrídinga.

Varane sem er aðeins 21 árs hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 74 leiki og skorað 4 mörk fyrir Real Madríd frá því hann kom til liðsins frá Lens í Frakklandi árið 2011. Hjá Lens lék Varane 24 leiki og skoraði 2 mörk aðeins 17 ára.

Varane er orðinn fastamður í franska landsliðinu og hefur þegar leikið 13 A-landsleiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert