Þrenna hjá Ronaldo í bursti Real Madríd

Cristiano Ronaldo fagnar einu af mörkum sínum í dag.
Cristiano Ronaldo fagnar einu af mörkum sínum í dag. AFP

Real Madríd sló upp markaveislu í heimsókn sinni til Deportivo la Coruna í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag, því Madrídingar hreinlega slátruðu heimamönnum í leik sem lauk 8:2.

Cristiano Ronaldo skoraði þrennu fyrir Real Madríd og Gareth Bale tvö mörk. James Rodríguez skoraði eitt mark og Mexíkóinn Javier Hernandez sem kom inn á sem varamaður fyrir Bale þegar 13 mínútur voru eftir skoraði tvö mörk á síðustu þremur mínútum leiksins.

Real Madríd hefur nú 6 stig í deildinni að loknum 4 leikjum. Real hefur unnið tvo leiki og tapað tveimur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert