Fullkomin byrjun hjá Barcelona

Lionel Messi og Dani Alves fagna í leiknum við Levante …
Lionel Messi og Dani Alves fagna í leiknum við Levante í kvöld. AFP

Barcelona er með fullt hús stiga og hefur enn ekki fengið á sig mark í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu eftir fjóra leiki en liðið vann stórsigur á Levante í kvöld, 5:0.

Neymar kom Börsungum yfir á 34. mínútu eftir sendingu frá Lionel Messi og heimamenn í Levante misstu svo Grikkjann Loukas Vyntra af velli með rautt spjald á 42. mínútu. Þó að Messi klúðraði vítinu sem dæmt var þá var eftirleikurinn auðveldur fyrir Börsunga manni fleiri.

Ivan Rakitic skoraði skömmu fyrir leikhlé og Sandro bætti við þriðja markinu eftir aðra sendingu frá Messi. Pedro skoraði fjórða markið og Messi innsiglaði sigurinn korteri fyrir leikslok.

Barcelona er með markatöluna 11:0 eftir fyrstu fjóra leiki sína, á toppnum með 12 stig, en Sevilla kemur næst með 10 stig eftir 3:1-sigur á Córdoba í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert