Matthías með sigurmark Start

Matthías Vilhjálmsson skoraði sigurmark Start gegn Viking í dag.
Matthías Vilhjálmsson skoraði sigurmark Start gegn Viking í dag. Ljósmynd/ikstart.no

Matthías Vilhjálmsson reyndist hetja Start þegar liðið vann 1:0-útisigur á Viking í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Matthías skoraði eina mark leiksins á 68. mínútu. Matthías lék allan leikinn með Start eins og Guðmundur Kristjánsson.

Þrír Íslendingar tóku þátt í leiknum með Viking í dag. Sverrir Ingi Ingason og Indri Sigurðsson léku allan leikinn í vörn Viking og Jón Daði Böðvarsson lék einnig allan leikinn með liðinu. Björn Daníel Sverrisson sat allan leikinn á bekknum en Steinþór Freyr Þorsteinsson var ekki í leikmannahóp Viking.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert