Santos tekinn við Portúgölum

Fernando Santos.
Fernando Santos. AFP

Fernando Santos var í dag ráðinn landsliðsþjálfari Portúgals í knattspyrnu í stað Paulo Bento sem hætti í kjölfarið á 1:0 ósigri gegn Albaníu á heimavelli í undankeppni EM fyrr í þessum mánuði.

Santos er 60 ára gamall Portúgali sem stýrði gríska landsliðinu frá 2010-14 en undir hans stjórn komust Grikkir í 16-liða úrslit á HM í Brasilíu í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert