Terry: Fengum mörg færi til að gera út um leikinn

Terry í baráttunni í kvöld.
Terry í baráttunni í kvöld. AFP

John Terry fyrirliði Chelsea var ekki ánægður með nýtingu sinna manna í leiknum gegn Sporting í kvöld en Chelsea hafði betur, 1:0.

„Við fengum svo mörg tækifæri til að gera út um leikinn en þetta eitt af þeim kvöldum sem boltinn fer ekki inn. En sem betur fer skoraði Nemanja Matic. Vip töpuðum fyrsta leiknum í riðlinum á síðustu leiktíð en enduðum á því að vinna riðilinn. Við erum komnir á topp riðilsins og eru í bílstjórasætinu,“ sagði Terry sem í kvöld lék sinn 100. leik í Meistaradeildinni.

„Ég er mjög stoltur og það eru ekki margir sem hafa afrekað þetta. Ég hef átt flottan feril og vonandi heldur hann eitthvað áfram,“ sagði Terry.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert