Zlatan í landsliðinu þrátt fyrir meiðslin

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. AFP

Zlatan Ibrahimovic, leikmaður París SG, er í sænska landsliðshópnum í knattspyrnu sem Eric Hamrén þjálfari tilkynnti í dag þrátt fyrir að hann sé frá keppni vegna meiðsla.

Ibrahimovic spilar ekki gegn Barcelona í kvöld vegna meiðsla í hæl. Hamrén ætlar hinsvegar að láta reyna á hvort hann verði ekki leikfær um aðra helgi en þá leika Svíar við Rússland og Liechtenstein í undankeppni Evrópumótsins. Ibrahimovic er markahæsti leikmaður sænska landsliðsins frá upphafi með 50 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert