Bale tæpur fyrir leikina gegn Liverpool og Barcelona

Gareth Bale.
Gareth Bale. AFP

Gareth Bale leikmaður Real Madrid er sagður tæpur fyrir leik sinna manna gegn Liverpool og Barcelona en Walesverjinn snjalli glímir við meiðsli.

Bale kom ekkert við sögu í 5:0 sigri Real Madrid gegn Levante um helgina en Real Madrid mætir Liverpool í Meistaradeildinni á miðvikudaginn og leikur síðan gegn erkifjendunum í Barcelona í spænsku deildinni á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert