Adriano beittur kynþáttarníði

Luiz Adriano skoraði fimm mörk fyrir sína menn í gærkvöld.
Luiz Adriano skoraði fimm mörk fyrir sína menn í gærkvöld. AFP

Brasilíski sóknarmaðurinn Luiz Adriano framherji Shakhtar Donetsk sakar stuðningsmenn BATE Borisov að hafa beitt sig kynþáttarníði þegar liðin áttust við í Meistaradeildinni í gærkvöld.

„Stuðningsmenn heimaliðsins öskruðu á mig úr stúkunni. Þeir voru virkilega dónalegir og voru með kynþáttarníð,“ er haft eftir Adriano, sem lék leikmenn BATE grátt í leiknum.

Adriano, sem er 27 ára gamall, gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk í 7:0 sigri sinna manna og hann skoraði þriðju fljótustu þrennuna í sögu Meistaradeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert