Aron ekki tilbúinn um helgina

Aron Jóhannsson í baráttu um boltann í leiknum gegn Gana …
Aron Jóhannsson í baráttu um boltann í leiknum gegn Gana á HM. AFP

Aron Jóhannsson, landsliðsmaður Bandaríkjanna í knattspyrnu, er ekki tilbúinn í slaginn með AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni, að mati þjálfarans, og er ekki í leikmannahópi liðsins fyrir leikinn gegn Groningen um helgina.

Aron spilaði fyrr í vikunni æfingaleik með varaliði AZ en það var hans fyrsti leikur frá því hann lék með Bandaríkjunum gegn Gana á HM í Brasilíu í júní. Hann fór í uppskurð að heimsmeistarakeppninni lokinni og hefur verið í endurhæfingu síðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert