Það gengur hvorki né rekur hjá Jürgen Klopp og lærisveinum hans í Dortmund á þessari leiktíð en liðið tapaði í dag á heimavelli fyrir Hannover, 1:0.
Hiroshi Kiyotake skoraði eina mark leiksins á 62. mínútu.
Dortmund er nú aðeins þremur stigum fyrir ofan botnlið Werder Bremen, með 7 stig eftir 9 leiki. Liðið hefur tapað 5 af síðustu 6 leikjum sínum í þýsku 1. deildinni.
Bayern München er á toppi deildarinnar með 20 stig og á leik til góða við Borussia Mönchengladbach á morgun. Hoffenheim, gamla liðið hans Gylfa Þórs Sigurðssonar, hefur enn ekki tapað leik og er í 2. sæti með 17 stig eftir að hafa unnið Paderborn í dag, 1:0.