Ronaldo skorað í 11 leikjum í röð

Cristiano Ronaldo þakkar Neymar fyrir leikinn á Santiago Bernabéu í …
Cristiano Ronaldo þakkar Neymar fyrir leikinn á Santiago Bernabéu í dag. AFP

Cristiano Ronaldo skoraði enn eitt markið fyrir Real Madrid í 3:1-sigrinum á Barcelona í dag í uppgjöri spænsku risanna.

Ronaldo skoraði þar með í ellefta leiknum í röð fyrir Real Madrid, og mörkin í þessum 11 leikjum eru 19 talsins.

Það er vinsælt að bera saman þá Ronaldo og Lionel Messi en Messi tókst ekki að skora í dag. Frá tímabilinu 2012-13 hafa þeir félagar hins vegar skorað nákvæmlega jafnmörg mörk, eða 81 talsins. Ronaldo hefur lagt upp 20 mörk og Messi 30.

Í deildinni á þessu tímabili hefur Ronaldo skorað 16 mörk í 8 leikjum og lagt upp 1 mark. Messi hefur hins vegar skorað 7 mörk í 9 leikjum, og einnig lagt upp 7 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert