Óheppnin eltir Reus

Marco Reus liggur á vellinum og mótherjinn hjá Paderborn fær …
Marco Reus liggur á vellinum og mótherjinn hjá Paderborn fær gula spjaldið. AFP

Þýski knattspyrnumaðurinn Marco Reus er meiddur enn á ný og spilar ekki meira með Dortmund á þessu ári eftir að hafa slasast á ökkla í leik liðsins gegn Paderborn um helgina.

Reus vill eflaust gleyma árinu 2014 sem fyrst. Hann meiddist á ökkla í vor og missti fyrir vikið af því að spila með Þjóðverjum í heimsmeistarakeppninni í Brasilíu. Skömmu eftir að tímabilið hófst meiddist hann á svipaðan hátt og missti af sjö leikjum Dortmund og enn á ný er ökklinn að gera honum lífið leitt.

Ekki bætir úr skák slæmt gengi Dortmund sem hefur aðeins unnið þrjá af fyrstu tólf leikjum sínum í þýsku 1. deildinni og er í þriðja neðsta sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert