Þýskur sigur og metaðsókn á Wembley

Celia Sasic, til hægri, skoraði tvö marka þýska liðsins.
Celia Sasic, til hægri, skoraði tvö marka þýska liðsins. AFP

Evrópumeistarar Þjóðverja unnu í gær öruggan sigur á Englendingum, 3:0, í vináttulandsleik kvenna í knattspyrnu á Wembley-leikvanginum í London. Þar var sett met á leik enska kvennalandsliðsins en rúmlega 45 þúsund manns sáu leikinn.

Bæði lið unnu alla tíu leiki sína í undankeppni heimsmeistaramótsins og eru að búa sig undir lokakeppnina í Kanada á næsta ári. Þýska liðið var hinsvegar mun sterkari aðilinn og komust yfir snemma með sjálfsmarki og Celia Sasic bætti við tveimur mörkum í fyrri hálfleiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert