Messi sló markametið

Lionel Messi fagnar einu marka sinna í kvöld.
Lionel Messi fagnar einu marka sinna í kvöld. AFP

Argentínumaðurinn Lionel Messi er orðinn markahæsti leikmaður Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu frá upphafi eftir að hann gerði þrennu fyrir Barcelona gegn APOEL á Kýpur í kvöld en Börsungar unnu þar stórsigur, 4:0.

Fyrir leiknn var Messi jafn Raúl hinum spænska með 71 mark í keppninni og hann sló því metið með fyrsta marki sínu í leiknum. Mörkin hans eru nú orðin 74  samtals.

Þetta er annað stóra markametið sem Messi slær á nokkrum dögum en um helgina varð hann markahæsti leikmaður spænsku 1. deildarinnar frá upphafi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert