Alfreð tók þátt í sigurleik

Alfreð Finnbogason
Alfreð Finnbogason Ljósmynd/Kristján Bernburg

Alfreð Finnbogason og félagar hans í Real Sociedad unnu í kvöld kærkominn sigur á Elche, 3:0, á heimavelli í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Alfreð kom inn á sem varamaður strax á áttundu mínútu leiksins og lék til leiksloka en náði ekki að skora. 

Mexíkóinn Carlos Vela skoraði öll mörk Real Sociedad, tvö þeirra eftir sendingar frá Carlos Martínez. Sociedad mjakaði sér upp úr 19. og næst síðasta sæti með þessum sigrinum og upp í 16. sæti en liðið hefur 10 stig að loknum 12 leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert