Vermaelen frá í fjóra til fimm mánuði

Thomas Vermaelen á æfingu hjá Barca í síðustu viku.
Thomas Vermaelen á æfingu hjá Barca í síðustu viku. AFP

Belgíski landsliðsmaðurinn Thomas Vermaelen gæti misst af því sem eftir lifir keppnistímabilsins vegna lærmeiðsla en miðvörðurinn er á leið undir hnífinn.

Vermaelen gekk í raðir Barcelona frá Arsenal síðasta sumar en hefur enn ekki náð að leika með Börsungum vegna meiðsla.

Vermaelen gæti orðið leikfær eftir fjóra til fimm mánuði en hann hefur verið óheppinn með meiðsli á undanförnum misserum og lék aðeins 21 leik
á síðasta tímabili með Arsenal. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert