San Lorenzo mætir Real Madrid

Mauro Matos, til vinstri, fagnar eftir að hafa komið San …
Mauro Matos, til vinstri, fagnar eftir að hafa komið San Lorenzo yfir í framlengingunni í kvöld. AFP

Suður-amerísku meistararnir San Lorenzo frá Argentínu mæta Real Madrid í úrslitaleik heimsbikars félagsliða í Marrakesh í Marokkó á laugardaginn eftir nauman sigur gegn Auckland City frá Nýja-Sjálandi, 2:1, í undanúrslitunum í kvöld.

Pablo Barrintos kom San Lorenzo yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks en Angel Berlanga jafnaði metin fyrir Ný-Sjálendingana á 67. mínútu. Staðan var 1:1 eftir venjulegan leiktíma en strax á þriðju mínútu framlengingar skoraði Mauro Matos fyrir Argentínumennina og það reyndist sigurmarkið, 2:1.

Auckland City leikur því um 3. sætið á mótinu gegn Cruz Azul frá Mexíkó á laugardaginn. Real Madrid vann Cruz Azul, 4:0, í fyrri undanúrslitaleiknum í gærkvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert