Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði í kvöld fyrstu mörk sín fyrir spænska liðið Real Sociedad í 2:0 sigri á Real Oviedo í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar.
Mörkin skoraði Alfreð á 27. og 61. mínútu leiksins og er Sociedad komið áfram í 16-liða úrslitin.