Hernandez ekki á förum frá Real Madrid

Javier Hernandez í leik með Real Madrid.
Javier Hernandez í leik með Real Madrid. AFP

Javier Hernandez, framherjinn knái frá Mexíkó, verður hjá Evrópumeisturum Real Madrid út leiktíðina en hann er þar í láni frá Manchester United.

Orðrómur hefur verið í gangi að Hernandez muni snúa fyrr til United en fyrirhugað var en þessu víðar umboðsmaður leikmannsins á bug.

„Javier Hernandez mun ekki fara frá félaginu. Jú vitaskuld vill hann fá fleiri mínútu en með mikilli vinnu þá opnast möguleiki á meiri spiltíma,“ sagði umboðsmaðurinn við spænska fjölmiðla.

Hernandez hefur skorað 3 mörk í þeim sjö leikjum sem hann hefur fengið að spreyta sig með Real Madrid í deildinni og þá hefur hann skorað eitt mark í bikarnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert