Jafntefli hjá Real Sociedad

Alfreð Finnbogason
Alfreð Finnbogason mbl.is/Golli

Real Sociedad fer ágætlega af stað undir stjórn David Moyes og gerði í dag 1:1 jafntefli á útivelli gegn Levante í spænska fótboltanum. 

Alfreð Finnbogason var í byrjunarliðinu og lék í 81. mínútu í framlínu Sociedad. 

Niðurstaðan var heldur súr fyrir Sociedad sem tók forystuna snemma í síðari hálfleik með marki frá Sergio Canales en í uppbótartíma fékk heimaliðið vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd varnarmanns Sociedad í skallaeinvígi. Andreas Ivanschitz skoraði af gríðarlegu öryggi úr vítinu. 

Liðin eru með jafn mörg stig í 14. - 15. sæti deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert