Griezmann með þrennu í sigri meistaranna

Antoine Griezmann fagnar einu af þremur mörkum sínum í kvöld.
Antoine Griezmann fagnar einu af þremur mörkum sínum í kvöld. AFP

Franski landsliðsmaðurinn Antoine Griezmann var á skotskónum í liði Spánarmeistara Atlético Madrid í kvöld þegar liðið vann góðan útisigur á Athletic Bilbao, 4:1.

Griezmann skoraði þrennu í leiknum og Raul Garcia skoraði eitt mark úr vítaspyrnu en heimamenn náðu forystunni með marki frá Mikel Rico.

Atlético Madrid er í þriðja sæti deildarinnar með 35 stig, Barcelona hefur 38 en nýkrýndir heimsmeistarar, Real Madrid, er í toppsætinu með 39 stig og á leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert