Emil Hallfreðsson og samherjar hans hjá Hellas Verona töpuðu á heimavelli í dag fyrir Chievo 0:1 í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu.
Emil var að vanda í byrjunarliði Verona en var skipt út af eftir 85 mínútur. Verona er í 13. sæti deildarinnar en Chievo í því 15.