Dortmund kaupir Kampl

Kevin Kampl fagnar marki með Salzburg.
Kevin Kampl fagnar marki með Salzburg. AFP

Þýska knattspyrnuliðið Dortmund sem er í fallsæti þýsku deildarinnar tilkynnti í dag um kaup á slóvenska miðjumanninum Kevin Kampl sem leikur með austurríska meistaraliðinu Salzburg.

Kampl sem er fæddur í Þýskalandi og er sóknarsinnaður miðjumaður, mun ganga til liðs við Dortmund í næsta mánuði en samningur hans við félagið gildir til ársins 2019. Hann er 24 ára gamall og að því er fram kemur í þýska fótboltatímaritinu Kicker greiðir Dortmund á bilinu 10 til 12 milljónir evra fyrir leikmanninn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert