Dýrmætur sigur hjá lærisveinum Arnars

Arnar Þór Viðarsson og lærisveinar unnu dýrmætan sigur í kvöld.
Arnar Þór Viðarsson og lærisveinar unnu dýrmætan sigur í kvöld. Kristján Bernburg

Lærisveinar Arnars Þórs Viðarssonar í Cercle Brugge unnu heldur betur dýrmætan sigur í botnbaráttu belgísku 1. deildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

Cercle var fyrir leikinn í næstneðsta sæti deildarinnar með sautján stig og fékk Waasland-Beveren í heimsókn sem var með þremur stigum meira í þriðja neðsta sæti. Lærisveinar Arnars fóru með 1:0 sigur af hólmi eftir að hafa komist yfir snemma leiks, en liðið spilaði síðustu 25 mínúturnar eða svo einum leikmanni færri.

Cercle Brugge er þó enn í næstneðsta sætinu, nú jafnt Waasland-Beveren að stigum en á botninum situr Lierse með fjórtán stig. Næsti leikur liðsins er ekki fyrr en 17. janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert