Óvæntur útisigur hjá Birki

Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason. mbl.is/Ómar

Birkir Bjarnason og samherjar í Pescara unnu í kvöld óvæntan útisigur á Livorno, 2:1, í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu.

Birkir lék allan leikinn á miðjunni hjá Pescara sem vann þar með tvo góða sigra um jólin og lyfti sér af mesta hættusvæði deildarinnar. Nú er liðið komið í 11. sæti af 22 liðum og er aðeins tveimur stigum frá umspilssæti, en liðin í sætum þrjú til átta fara í vor í umspil um sæti í A-deildinni.

Pescara er með 28 stig og er ekki nema sex stigum á eftir Frosinone og Bologna sem eru í öðru og þriðja sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert