Ronaldo slapp með skrekkinn

Cristiano Ronaldo fær hér að líta rauða spjaldið.
Cristiano Ronaldo fær hér að líta rauða spjaldið. AFP

Cristiano Ronaldo leikmaður Evrópumeistara Real Madrid slapp með skrekkinn en hann var í dag úrskurður í tveggja leikja bann af aganefnd spænska knattspyrnusambandsins.

Ronaldo fékk rautt spjald í leiknum gegn Cordoba um síðustu helgi fyrir að slá og sparka í mótherja sína. Sumir áttu von á þyngri refsingu en Ronaldo missir af leikjum sinna manna gegn Real Sociedad og Sevilla. Hann kemur því ferskur til leiks þegar Real Madrid mætir Spánarmeisturum Atlético Madrid þann 7. febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert