Óvíst er hvort Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmiðherji í knattspyrnu, geti spilað með Ajax gegn Vitesse í hollensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Á vef Ajax segir að Kolbeinn sé einn þriggja leikmanna sem tvísýnt sé um fyrir leikinn en hann glími við eymsli í hægra hné.
Ajax er sex stigum á eftir PSV Eindhoven í fyrirsjáanlegu einvígi liðanna um hollensku meistaratitilinn en eftir 19 umferðir af 34 er PSV með 49 stig og Ajax 43 stig. Ajax hefur unnið meistaratitilinn fjögur ár í röð og Kolbeinn hefur tekið þátt í þremur síðustu sigrunum.