Alfreð á bekknum gegn Evrópumeisturunum

Alfreð Finnbogason byrjar á bekknum gegn Real Madrid í dag.
Alfreð Finnbogason byrjar á bekknum gegn Real Madrid í dag. Ljósmynd/Rubén Plaza

Alfreð Finnbogason er á meðal varamanna Real Sociedad sem mætir í heimsókn til toppliðs Real Madrid í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu klukkan 15.

Sociedad er í ellefta sæti deildarinnar fyrir leikinn með 22 stig en Real Madrid er á toppnum með 48 stig og getur náð fjögurra stiga forystu á Barcelona, sem á þó leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert