Messi tryggði Börsungum sigur

Lionel Messi.
Lionel Messi. AFP

Lionel Messi tryggði Barcelona 3:2-sigur gegn Villarreal í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld en liðin áttust við á Nou Camp.

Gestirnir komust tvívegis í forystu. Denis Cheryshev skoraði fyrsta markið á 30. mínútu en Neymar jafnaði metin á lokamínútu fyrri hálfleiks. Upphafsmínúturnar í seinni hálfleik voru mjög fjörugar en þrjú mörk litu dagsins ljós á fimm mínútna kafla. Luciano Dario Vietto kom gestunum í 2:1 en Rafinha og Messi svöruðu fyrir Barcelona. Messi skoraði þar með sitt 22. mark í deildinni en Cristiano Ronaldo er markahæstur með 28 mörk.

Real Madrid er með 51 stig í efsta sæti, Barcelona hefur 50 og Atlético Madrid 47.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert