Wanchope ráðinn landsliðsþjálfari Kostaríka

Paulo Wanchope.
Paulo Wanchope. AFP

Paulo Wanchope var í kvöld ráðinn landsliðsþjálfari Kostaríka til frambúðar en hann var ráðinn þjálfari liðsins tímabundið þegar Jorge Luis Pinto hætti með liðið eftir HM síðastliðið sumar.

Wanchope er 38 ára gamall og lék 75 landsleiki fyrir Kostaríka á árunum 1996 til 2008 og skoraði í þeim 45 mörk. Þá lék hann með ensku liðunum Derby, West Ham og Manchester City en hann lagði skóna á hilluna árið 2007. Síðasta liðið sem hann spilaði með var lið Chicago Fire.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert