Aron Jóhannsson kemur á ný inn í leikmannahóp AZ Alkmaar sem fær Willem II í heimsókn í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu annað kvöld.
Aron lék síðast með gegn Ajax á útivelli 5. febrúar og skoraði þá sigurmarkið, 1:0. Hann meiddist og hefur misst af síðustu þremur leikjum AZ í deildinni.
Hann byrjar væntanlega á bekknum en John van den Brom sagði á fréttamannafundi nú um hádegið að Robert Mühren myndi halda stöðu sinni í byrjunarliðinu. Hann hefur tekið stöðu Arons í síðustu leikjum og skorað í tveimur þeim síðustu.