Kolbeinn fer til Úkraínu ásamt Everton

Everton er eina enska félagið eftir í keppninni og mun …
Everton er eina enska félagið eftir í keppninni og mun fara til Úkraínu. AFP

Nú rétt í þessu var dregið í sextán liða úrslit Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu, en Jerzy Dudek, fyrrum markvörður Liverpool, var fenginn til að aðstoða við dráttinn.

Fyrir fram var ákveðið að lið frá Rússlandi og Úkraínu gætu ekki dregist saman, en tvö lið frá hvoru landi voru í pottinum. Gianni Infantino frá UEFA nefndi sérstaklega fyrir dráttinn að útrýma ætti ofbeldi og fordómum úr knattspyrnunni, sem væri mikill smánarblettur á íþróttinni.

Meðal athyglisverðra viðureigna er að Everton, eina enska liðið sem eftir er í keppninni, fer til Úkraínu og mætir þar Dynamo Kíev. Það sama má segja um Kolbein Sigþórsson og félaga í Ajax sem drógust gegn Dnipro. Þá mæta Liverpool-banarnir í Besiktas liði Club Brugge.

Þá verða tveir grannaslagir. Ríkjandi meistarar Sevilla fara ekki langt heldur mæta löndum sínum í Villarreal og þá mætast ítölsku liðin Fiorentina og Roma.

Dráttinn má sjá í heild sinni hér að neðan.

Everton (England) - Dynamo Kíev (Úkraína)
Dnipro (Úkraína) - Ajax (Holland)
Zenit (Rússland) - Torino (Ítalía)
Wolfsburg (Þýskaland) - Inter (Ítalía)
Villarreal (Spánn) - Sevilla (Spánn)
Napoli (Ítalía) - Dinamo Moskva (Rússland)
Club Brugge (Belgía) - Besiktas (Tyrkland)
Fiorentina (Ítalía) - Roma (Ítalía)

Fyrri leikirnir fara fram þann 12. mars og síðari leikirnir viku síðar. Sjálfur úrslitaleikurinn fer fram í Varsjá í Póllandi 27. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert