Barcelona minnkaði forskot Real Madrid niður í eitt stig með 3:1 útisigri gegn Granada í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag.
Ivan Rakitic, Luis Suárez og Lionel Messi skoruðu mörk Börsunga sem eru með 59 stig en Real Madrid hefur 60 stig og á leik til góða.
Þetta var 27. markið hjá Messi í deildinni en Cristiano Ronaldo er markahæstur með 29 mörk.