Alfreð Finnbogason lék síðustu 11 mínúturnar fyri Real Sociedad þegar liðið tapaði fyrir Valencia, 2:0, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag.
Pablo Piatti skoraði bæði mörk Valencia með þriggja mínútna millibili í byrjun seinni hálfleiks. Valencia er með 53 stig í 3.-4. sæti deildarinnar en Real Sociedad er í 11. sætinu með 27 stig.