Dýrmæt stig í súginn hjá meisturunum

Frá viðureign Sevilla og Atlético Madrid í kvöld.
Frá viðureign Sevilla og Atlético Madrid í kvöld. AFP

Spánarmeistarar Atletíco Madrid töpuðu dýrmætum stigum í toppbaráttu spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn Sevilla.

Atlético Madrid er í þriðja sæti deildarinnar með 54 stig, Barcelona er í öðru sætinu með 59 en Real Madrid trónir á toppi deildarinnar með 60 stig en liðið er þessa stundina að spila við Villareal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert