Guardiola hefur engan áhuga á City

Josep „Pep“ Guardiola.
Josep „Pep“ Guardiola. EPA

Pep Guardiola hefur það ekki í hyggju að yfirgefa Þýskalandsmeistara Bayern München fyrir Englandsmeistara Manchester City en sögurnar fóru á flakk eftir slæma spilamennsku Manuels Pellegrinis og félaga hjá City að undanförnu auk þess sem viðræður Guardiola um nýjan samning við Bæjara voru settar í salt þar til í sumar.

„Manchester City? Ég fékk engin boð frá þeim og er ekki að bíða eftir neinu slíku. Ég vonast til að vera hjá Bayern í langan tíma. Ég mun setjast niður með forráðamönnum félagsins í sumar og ræða framtíðina. Ég er mjög ánægður hjá þessu magnaða félagi,“ sagði Guardiola en samningur hans við Bæjara rennur út árið 2016.

„Ég er samningsbundinn við dásamlegt félag og hef ekki fengið nein tilboð frá öðrum félögum,“ sagði Spánverjinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert