Opnunarleik Algarve-bikarsins í knattspyrnu er lokið, en þar mættust Japan og Danmörk í C-riðli.
Þar höfðu Danir betur, 2:1, en þess má geta að Japan er heimsmeistari í kvennaflokki. Danir komust yfir strax í upphafi leiks þegar Sanne Troelsgaard skoraði en Kozue Ando jafnaði metin fyrir Japan strax á sautjándu mínútu. Það var svo Johanna Rasmussen sem tryggði Danmörku sigurinn með marki snemma í síðari hálfleik.
Hin liðin í riðlinum eru Portúgal og Frakkland sem mætast síðar í dag.