Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson skoraði fyrsta mark norska knattspyrnuliðsins Vålerenga í dag þegar það sigraði spænska C-deildarliðið Marbella, 3:0, í æfingaleik á heimavelli þess á Spáni.
Elías hefur farið vel af stað með norska liðinu og skorað tvö af fimm mörkum þess á undirbúningstímabilinu til þessa. Hann kom til liðs við félagið í byrjun febrúar en í janúar lék þessi tvítugi kantmaður sína fyrstu tvo A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Keppni í norsku úrvalsdeildinni hefst um páskana og Vålerenga byrjar á heimaleik gegn Strömsgodset á öðrum degi páska, 6. apríl.