Flestir sem fylgjast með fótbolta kannast við gula og rauða spjaldið og þykir ekki gott ef dómarinn sýnir leikmanni slíkt. Nú ætla Svíar að prófa græna spjaldið samkvæmt því er fram kemur í Aftonbladet.
Græna spjaldið munu dómararnir sýna leikmanni þegar hann sýnir af sér góða hegðun og íþróttamennsku. „Þetta er mjög spennandi hugmynd,“ er haft eftir Jonas Eriksson, FIFA dómara.
Svíar ætla að prófa þetta í yngri flokkunum og prufukeyrslan verður á yngri flokka móti í Södertälje í sumar.