Brasilíumenn stöðvuðu sigurgöngu Frakka

Neymar lætur vaða á markið í kvöld.
Neymar lætur vaða á markið í kvöld. AFP

Brasilíumenn lögðu Frakka með þremur mörkum gegn einu í vináttulandsleik þjóðanna á Stade de France í norðurhluta Parísarborgar í kvöld en Frakkar höfðu ekki tapað landsleik frá því í á heimsmeistarakeppninni í Brasilíu síðasta sumar þar sem liðið vann meðal annars Spánverja, Portúgali og Svía.

Það leit vel út fyrir Frakka þegar að Raphael Varane kom þeim yfir með skalla á 22. mínútu eftir hornspyrnu Mathieu Valbuena.

Brasilíumenn svöruðu hins vegar með þremur mörkum. Oscar jafnaði metin á 40. mínútu og stóðu leikar jafnir í hálfleik 1:1.

Neymar kom Brasilíu yfir með föstu skoti með vinstri fæti, óverjandi fyrir Steve Mandanda í marki Frakka en Hugo Lloris var fjarri góðu gamni í kvöld vegna meiðsla.

Luis Gustavo skoraði svo þriðja mark Brasilíumanna og tryggði þeim frábæran sigur.

Markið hjá Neymar:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert