Radamel Falcao lánsmaður Manchester United jafnaði í kvöld markamet kólumbíska landsliðsins þegar hann skoraði þriðja mark liðsins úr vítaspyrnu í 3:1 sigri á Kúveit en markið var hans 24. í röðinni.
Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Falcao í vetur hjá Manchester United en honum halda engin bönd í landsleikjatörninni sem nú er í gangi en þar hefur framherjinn skorað þrjú mörk í tveimur leikjum.
Hann skoraði tvö mörk í 6:0 sigri á Bahrain á dögunum en hefur aðens skorað fjögur mörk í 22 leikjum fyrir United.
Leikirnir eru hluti af undirbúningi kólumbíska landsliðsins fyrir Ameríkukeppnina sem haldin verður í Síle í júní næstkomandi.