Þrír leikmenn gríska landsliðsins lentu í bílslysi á leið sinni út á flugvöll í Búdapest í morgun þegar að leigubíll þeirra lenti í árakstri við annan bíl. Tveir leikmannana eru liðsfélagar landsliðsmannsins Emils Hallfreðssonar hjá Hellas Verona á Ítalíu en þeir sluppu ómeiddir.
Leikmennirnir eru Vangelis Moras, Panagiotis Tachtsidis og Ioannis Fetfatzidi en þeir tveir fyrrnefndu leika með Emil og voru útskrifaðir af sjúkrahúsi í dag en Fetfatzidi er þar enn.
Lögreglan í Búdapest segir að að ein manneskja hafi látið lífið í árekstrinum og að áreksturinn hafi verið mjög harður.
Leikmennirnir voru á leið frá Ungverjalandi eftir að hafa gert 0:0 jafntefli við heimamenn í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu.
Tachtsidis, Vangelis Moras y Fetfatzidis salen ilesos de un accidente de tráfico: #Grecia pic.twitter.com/nfxhHtOSzC
— Fútbol 360 (@FT_360) March 30, 2015