Gareth Bale kastar körfubolta (myndskeið)

Gareth Bale.
Gareth Bale. AFP

Walesverjanum Gareth Bale er margt til lista lagt. Hann getur ekki aðeins þotið fram hjá andstæðingum sínum inni á knattspyrnuvelli heldur virðist hann einnig geta kastað körfubolta.

Bale hitti þremur af fimm skotum sínum ofan í körfuna frá miðjum vellinum og skoraði á formúlu 1 ökuþórinn Lewis Hamilton og liðsfélaga sinn hjá Luka Modric hjá Real Madrid að leika þetta eftir.

Sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert