Zlatan skoraði eitt og lagði upp annað

Zlatan Ibrahimovic sýnir hér glæsitakta.
Zlatan Ibrahimovic sýnir hér glæsitakta. AFP

Zlatan Ibrahimovic skoraði eitt mark og lagð upp annað þegar Svíar báru sigurorð af Írönum í vináttuleik í Stokkhólmi í kvöld.

Zlatan skoraði fyrsta mark Svía og þeir Marcus Berg og Ola Toivonen bættu tveimur mörkum við en í millitíðinni hafði Írönum tekist að minnka muninn. Svíar hafa farið vel af stað á árinu en þeir hafa unnið alla þrjá leiki sína eftir talsvert basl í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert